14.12.2011 | 20:44
Þegar Icesave stal jólunum
Það var komið fram á aðventu, allir í þessu fína jólaskapi, auglýsingarnar dynjandi á landslýð sem aldrei fyrr bjóðandi dýrindis jólagjafir, jafnvel upp á nokkra tugi þúsunda og jólaljósin lýstu langt út í skammdegið. Þá gerðist það allt í einu meðan þingmennirnir voru í óðaönn að ræða um bandorminn, leiðinlega og árvissa sem mikið til gengur út á það hversu mikið brennivínið og tóbakið skuli hækka á næsta ári, læddist grimm, ógurleg krumla yfir landið. Þingfundur stoppaði og í snatri boðað til fundar í utanríkismálanefnd.
Hið ógurlega Icesave var mætt á svæðið. Að sönnu hafði það gerst á aðventu undanfarin þrjú ár en nú héldu menn að þjóðin væri búin að segja svo afgerandi nei að sjálf krumlan hefði rokið lúpuleg í burtu. Nei, svo var ekki heldur var hún mætt, vopnuð skjali einu þar sem boðuð var kæra vegna vanefnda á samningi fyrir EFTA dómstólnum.
Þetta kom svo sem ekki á óvart, margir sem vildu samþykkja síðasta samning vöruðu við að þetta gæti gerst en þó skyldu þeir varast að vera með neina Þórðargleði yfir þessu. Afleiðingar þessa geta nú nefnilega orðið svo geigvænlegar að sjálfstæði þjóðarinnar sem í dag er að vísu nokkuð takmarkað verði að fullu fyrir bí. Við verðum líka að varast það að taka þessu með einhverjum þjóðernishroka og gorti heldur leitast við að gera sem best úr hlutunum, reyna að finna jólin sem Icesave en ekki Trölli er búið að stela.
En forseti lýðveldisins verður nú að hugsa sitt mál. Spurningin er hvort honum sé siðferðilega sætt áfram í embætti eftir að sá möguleiki er fyrir hendi að nei-ið hans kosti þjóðarbúið nokkra tugi milljarða.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.12.2011 | 12:40
Peningahyggja
Dagskrárgerðarmaður einn á Rás 2 sagði í gær milli laga að senn liði nú að jólum og því þyrfti að skjóta inn auglýsingum. Mikið óskaplega fannst manni þetta eitthvað dæmigert fyrir hugsanagang þjóðarinnar nú í desember. Það er nefnilega talið lífsnauðsynlegt að halda upp á fæðingu mesta mikilmennis sem sögur fara af með því að kaupa, eyða og spreða sem aldrei fyrr. Þetta þykir sýna þeim manni sem velti um borðum víxlaranna tilhlýðilega virðingu. Peningahyggja þjóðarinnar og reyndar heimsins alls kemur aldrei betur í ljós en á aðventunni. Á fólki dynja auglýsingar um hitt og þetta sem sé nauðsynlegt að gefa í jólagjöf. Þó er það nú svo að líklega er það þessi peningahyggja sem er að fara með efnahag heimsins til fjandans. Almenningur er látinn greiða upp skuldir auðmanna sem sumar hverjar voru reyndar aldrei til því menn bjuggu til peninga sem engar innistæður voru fyrir, létu bankana prenta fyrir sig ógrynni af seðlum eða jafnvel bara ýta á einhverja tölvutakka svo peningar yrðu til. Og þessum gervipeningum var spreðað út um heiminn.
En bólan hlaut að springa áður en yfir lyki. Ísland var fyrst í röðinni, hinir komu á eftir. Nú talar Steingrímur um að kreppunni sé að ljúka hér en einhvern veginn hefur maður það á tilfinningunni að þessi kreppulok séu aðeins drifin áfram af gervilánsfé til aukningar á neyslu millistéttarinnar. Aldraðir, öryrkjar og einstæðar mæður sitja í sömu súpunni norpandi fyrir utan hjálparstofnanirnar í von um einhvern smá mola úr hendi þeirra sem alltaf mega sín betur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.12.2011 | 20:56
Stöndum með Færeyingum
Fyrir nokkrum dögum gekk mikið óveður yfir Færeyjar og olli miklu tjóni. Nú hafa aðilar á Íslandi og í Færeyjum ákveðið að efna til söfnunar til ágóða fyrir björgunarfélag þar í landi næstkomandi sunnudag með tilheyrandi sjónvarpsútsendingu. Það er fyllsta ástæða til að hvetja Íslendinga til samstöðu með þessum frændum okkar, þeir hafa oft hlaupið undir bagga þegar á hefur bjátað hjá okkur. Færeyjar eru ósköp yndislegt og notalegt land, þarna mitt á milli Íslands og Skotlands. Það er virkilega gaman að koma þangað í heimsókn og sá sem vill taka tímavél 40 ár aftur í tímann verður ekki svikinn. Þetta er allt óskaplega heimilislegt. Alls staðar eru einhverjir staðir þar sem Guð er tilbeðinn, alls staðar eru skilti sem vara við rúsdrekka sem er færeyska orðið fyrir áfengi. Og allir eru keðjureykjandi úti á götu, þar á meðal unglingarnir í unglingavinnunni að flokkstjórum meðtöldum.
Já, þetta er allt svo óskaplega yndislegt og sýnir hversu við Íslendingar erum orðin virkilega þróuð þjóð sem líka er búin að fara rækilega á hausinn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.12.2011 | 20:40
Frosin ferðaþjónusta
Norðausturland er nú allt orðið að einni allsherjar frystikistu. Hér frýs allt sem frosið getur og það er varla að mannkindin nái að skríða fram úr hýðinu til að taka þátt í jólaveislunni. Og hingað í frostið berast fréttir af því að Iceland Express ætli ekki að fljúga beint frá Köben hingað til Akureyrar næsta sumar. Enn eitt höggið á hina frosnu, norðlensku ferðaþjónustu eftir Nupo, sem reyndar einhverjir ætla nú að reyna að grátbiðja að koma. Er nú spurningin hvort ekki sé tilvalið að fá hann til að fjárfesta í beinu millilandaflugi til Akureyrar. Ef hann getur fundið leið til að græða á lúxushóteli og golfvelli uppi á Hólsfjöllum þá hlýtur hann að geta grætt á flugi til Akureyrar þótt Iceland Express telji sig ekki geta gert það.
Annars er það mikið áfall að þetta flug leggist af. Að margra mati er það orðið brýnt að önnur inngönguleið finnist inn í landið svo ferðamenn fái eitthvað annað að sjá af Íslandi en þetta lopapeysustreet í miðbæ Reykjavíkur. Á Norðausturlandi eru margar merkustu náttúruperlur Íslands eins og Ásbyrgi, Dettifoss og Askja. Ef þessar náttúruperlur á að vernda hlýtur það að verða til þess að þær megi nýta í þágu mannkyns en ekki hafa þær faldar fyrir almenningi..... hreindýrum og hröfnum að leik.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.11.2011 | 20:39
Afstæð mannréttindi
Enn á ný blossaði upp deilan milli forsvarsmanna kirkjunnar og mannréttindaskrifstofu Reykjavíkur vegna reglna sem þar hafa verið settar um samskipti skóla og trúfélaga. Þó svo að í mörgu hafi þessar reglur verið mildaðar frá upphaflegum drögum þá hafa kirkjunnar menn enn þá ýmislegt við þær að athuga og mörg eru túlkunaratriðin sem óljós eru. Til dæmis bann við þátttöku skólanema í bænahaldi og trúarathöfnum á skólatíma sem sumir túlka sem svo að þarna sé meðal annars verið að úthýsa sjálfu Faðir vorinu.
Ja, mikill er máttur siðmenntar orðinn ef hann er nú farinn að geta úthýst sjálfu Faðir vorinu sem maður hélt að væri það rótfastasta af öllu rótföstu. Og segja má að þessi tilhneiging borgaryfirvalda til afhelgunar sé að nokkru leyti einhvers konar andóf gegn almennu, félagslegu viðhorfi þjóðarinnar. Þessa sér alveg sérstaklega stað einmitt núna þegar jólin nálgast. Jólin eru svo óaðskiljanlegur hluti mannlífs hér á norðurhjara með ljósi sínu, friði og gjöfum. Manni finnst einhvern veginn að það væri nær að mannréttindaráðið fjallaði um réttindi þeirra barna sem svipt eru þeirri gleði sem undirbúningi jólanna fylgir vegna trúarskoðana foreldranna. Ég hef heyrt harmleiki, til dæmis af börnum Votta Jehóva sem hafa verið útilokuð frá litlu jólunum og jólaskreytingum. Það getur vel verið að jólin séu heiðin hátíð að uppruna en kirkjuþingið í Nikeu ákvað að þessi hátíð skyldi líka verða minningarhátíð um fæðingu Krists og sem slík hefur hún fest í sessi í hinum kristna heimi. Biblían segir ekkert um það hvort að jólin séu heiðin eða ekki, þau voru einfaldlega ekki til áður en Biblían var rituð.
Þetta ættu þessir mannréttindaforkólfar að hugsa um þegar þeir skammta mannréttindin á þennan hátt. Hér er ekki um einhver réttindi foreldra að ræða heldur réttindi barna til að njóta óhefts frelsis til að gleðjast, halda helgi og vera upplýst um öll heimsins trúarbrögð. En mannréttindi eru víst líklega afstæð og ekki hin sömu fyrir alla.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.11.2011 | 22:06
Aðventa
Aðventan er byrjuð. Þessi skemmtilegasti tími ársins, tími ljóss, tónlistar og hrikalegs neyslukapphlaups. Aðventan á rót sína að rekja eins og margt fleira til kirkjuþingsins í Nikeu 323-325. En það var haldið undir verndarvæng Konstantínusar mikla og tók margar ákvarðanir sem enn eru í gildi í dag. Það fastsetti meðal annars hvenær minnst skyldi fæðingar Krists og jafnvel hvaða rit skyldu tilheyra Biblíunni, en það er reyndar ákvörðun sem enn er umdeild og hafa verið gefnar út í heiminum margar mismunandi Biblíur og til að mynda sú sem við notum á Íslandi, Bresk að uppruna sú sama og breska biskupakirkjan notar. í dag er það sem einkennir aðventuna eru allir þessir tónleikar út um allt og aðventukvöldin þar sem vinsælt er að stjórnmálamenn haldi ræður og svo auðvitað jólahlaðborðin, þá eru auglýsingarnar sem dynja í útvarpinu en þess má geta að jólaauglýsingarnar eru löngu byrjaðar og þær fyrstu mátti minnir mig heyra þegar í júní eða júlí í sumar. En hvað sem má segja um þetta neyslubrjálæði er aðventan skemmtilegasti tími ársins, tími ljóss og friðar ef maður passar bara að fara ekki á límingunum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.11.2011 | 20:39
Gerræði ráðherrans
Hugurinn reikar aftur til síðustu ára níunda áratugarins. Miklar og illvígar deilur voru þá í landinu út af því hvort leyfa ætti sölu á áfengum bjór, um það leyti var formaður BSRB ungur fréttamaður hjá sjónvarpinu Ögmundur Jónasson að nafni var hann um tíma fréttaritari í kaupmannahöfn og var spurður álits í bjórmálinu og hann svaraði að hann vonaðist til þess að aldrei yrði leyft að selja bjór á Íslandi því ef það yrði gert myndu íslendingar fljótt verða samsafn af góðglöðum letingjum og einskinsnýtum lýð eins og Danir væru orðnir. Eitthvað fannst manni þetta bera vott um litla virðingu fyrir þjóðinni sem hann bjó hjá. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan og téður Ögmundur er orðinn innanríkisráðherra sem finnur vel til valds síns, það sýndi hann með eftirminnilegum hætti í dag þegar hann hafnaði 23 milljarða innspýtingu inn í atvinnulífið á norðausturlandi. Það er dýrt fyrir norðlendinga atkvæðið hans Ævars Kjartanssonar og gistingin á Grímsstöðum gegn atvinnulífinu á norðurlandi. Búið er að slá af nánast alla stóriðju á Bakka, Vaðlaheiðagöng eru í uppnámi og menn vilja ekki að sama gildi um aðrar stórframkvæmdir eins og Landspítalann. Þá er það blessað áfengislagafrumvarpið sem Ögmundur er að reyna að keyra í gegn og ganga mun að allri samkeppnishæfni íslensks bjórs dauðri á auglýsingamarkaði. Réttast væri að þingmenn á landsbyggðinni tækju sig saman og flyttu breytingartillögu við þetta frumvarp þess efnis að bjór auglýsingar yrðu gefnar frjálsar með þessu yrði komið fram sætri hefnd fyrir það ólýðandi gerræði sem þessi fyrrverandi BSRB formaður er búinn að sýna.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.11.2011 | 22:10
Hringekja gleymskunnar
Sjálfstæðisflokkurinn hélt landsfund, Davíð Oddsson sagði nokkra illkvittna fimmaurabrandara og Geir H. Haarde kom fram sem píslarvottur. Sænsk verslunarkeðja opnaði í Smáralindinni og allar vörurnar seldust upp á þremur tímum þar með talið fatnaðurinn á gínunum. Þá er salan á lúxusjeppum, flatskjám og ýmsu þesslegu að taka við sér.
Jú, jólin eru á næsta leyti en svo virðist sem hringekja gleymskunnar sé líka farin af stað. Við erum aftur að sigla inn í góðærið, hinn Vafningalausi formaður sjálfstæðisflokksins sem endurkjörinn var nú á dögunum mun sjálfsagt vinna mikinn kosningasigur og mynda ríkisstjórn. Allt mun falla í sama góðærið og 2007. Meira að segja bankarnir sem öllu ráða í þessu þjóðfélagi eru byrjaðir að auglýsa óverðtryggð lán enda hyllir nú undir að skattar verði færðir til 2007 þannig að liðið geti nú aldeilis farið að leika sér. Skítt með alla aldraða, öryrkja og láglaunafólk. Það má éta það sem úti frýs. Skera bara niður draslið eins og mögulegt er.
Og áfram þýtur hringekja gleymskunnar með þjóðina þar til hún stöðvast og allir hendast út, sinn í hverja áttina.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.11.2011 | 21:52
Að byggja miðaldir
Sú hugmynd hefur skotið upp kollinum að byggja í Skálholti timburkirkju eina mikla, 50 metra langa og hátimbraða eftirlíkingu af dómkirkju þeirri er þar var á miðöldum. Gert er ráð fyrir að bygging þessi kosti skildinginn eða allt að hálfum milljarði króna og skal þessara peninga aflað með aðgangseyri eða einhverju slíku. Ekki mun hugmyndin að vígja þessa kirkju heldur á hún að vera þarna sem eitthvert aðdráttarafl fyrir ferðamenn enda fyrir á staðnum vegleg dómkirkja. Það er erfitt að skilja hvaða tilgangi það þjónar að byggja kirkju sem ekki á að nota fyrir kirkju heldur sem eitthvert ferðamannamannvirki og í sjálfu sér hálfgert guðlast að selja aðgang að guðshúsi.
Þetta fyrirhugaða guðshús á sér fyrirrennara, hrúgaldið hans Árna Johnsen sem kallað er Þorláksbúð. Hrúgald þetta er síst til að fegra Skálholtsstað og fremur lítil virðing við minningu hins sæla Þorláks biskups. Líklega væri minningu hins forna biskupsstóls meiri virðing sýnd með því að verja þeim peningum sem í það eiga að fara að byggja þarna miðaldir í að efla biskupsstólana, gera biskupana á þessum stöðum að raunverulegum biskupum þannig að þeir geti komið í stað þessa tildurembættis sem kallast biskup Íslands í Reykjavík.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.11.2011 | 22:13
Textíll í leikhúsinu
Það er sennilega ekki algengt að sjómaður stjórni þotu , sendill sé tölvunarfræðingur eða fjósakona ráðherrafrú. Það rak því alla í rogastans þegar fréttist að textílhönnuður hefði verið ráðinn verkefnisstjóri hjá Leikfélagi Akureyrar. Nú áttar maður sig ekki almennilega á því hvað textílhönnun hefur með leikhús að gera. Jú hugsanlega eitthvað í sambandi við leikmyndina en leikmynd, þó mikilvæg sé, er ekki það atriði sem sýning stendur og fellur með.
En skýringuna á þessari ráðningu fékk maður fljótlega. Svo er nefnilega mál með vexti að stúlkukind sú sem hér um ræðir mun vera dóttir Odds Helga þess Halldórssonar sem hér hefur ríkt sem kóngur frá því listi hans hinn svonefndi Listi lýðsskrumara náði völdum við síðustu bæjarstjórnarkosningar. En nú er svo komið að fjölskylda Odds og ættmenni sitja í nánast öllum feitustu störfum og embættum á vegum bæjarins. Svo kaldhæðnislega vill til að listi þessi fékk hreinan meirihluta í síðustu kosningum vegna þess meðal annars að fólk vildi refsa fyrri meirihluta bæjarins fyrir spillingu en sá meirihluti komst til valda vegna þess að meirihlutanum sem á undan honum var var refsað vegna enn meiri spillingar.
Nú hlýtur mælirinn að vera fullur. Íbúar á Akureyri spyrja sjálfa sig að því hvenær í ósköpunum þeir fá loksins bæjarstjórn sem er laus við spillingu, eiginhagsmunapot og sérgæsku.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)