25.8.2009 | 16:34
Menntunar mannréttindi
Af því hafa borist fregnir að 300 manns hafi verið neitað um skólavist í Verkmenntaskólanum á Akureyri. Oft hafa í fjölmiðlum verið fréttir af þrengslum í framhaldsskólum og mörgum hafi verið neitað um skólavist en eiginlega hefur mátt heyra á hinu heimóttarlegu sunnlensku fjölmiðlum að þetta eigi nánast eingöngu við á höfuðborgarsvæðinu. En vandinn er semsagt víðar og víst að ástæðan er auðvitað þessi ríkisfjármálaskipun frá alþjóða gjaldeyrissjóðnum en það er ekki bara að skólarnir geti ekki tekið við öllum sem um sækja. Það er næstum úr öskunni í eldinn ef maður kemst inn í skóla, svo dýrt er nú orðið að stunda nám. Þökk sé fína lága genginu á krónunni. Það kvað víst kosta þó nokkra þúsundkallana að búa út eitt grunnskólaball og þegar upp í framhaldskóla kemur hleypur kostnaðurinn á tugum til hudruði þúsunda. Ef húsaleiga samgöngur og annað er tekið með í reikninginn og ekkert heyrist frá stjórnvöldum. Sennilega hafa það verið hrapaleg mistök að færa fræðsluskildu til 18 ára í stað þess að einbeita sér að því að hjálpa þeim ungmennum sem náð hafa 16 ára aldri og á höllum fæti standa. Vel mætti hugsa sér t.d. að virkja námsráðna kerfið að einhverju leiti í þessu skyni svo og atvinnuleysistryggingar því það er auðvitað gjörsamlega ólíðandi í lýðræðisþjóðfélagi eins og okkar að fólk skuli þurfa að hrökkklast frá námi af efnahagsástæðum og auk þess er af þessu auðvitað enginn sparnaður til lengri tíma litið. Ef að fjöldinn allur af hæfu fólki dettur úr námi. Menntun er mannréttindi sem frumskilda hvers þjóðfélags ber að standa vörð um. Það er með hana eins og svo margt annað, að hana verður að efla þó að það sé ekki hægt.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.