Kauðaleg fréttamennska

Í síðdegisfréttum ríkisútvarpsins í gær birtist frétt um skoðanakönnun sem væri væntanleg varðanda afstöðu þjóðarinnar til Evrópusambandsins. Ekki var sagt frá því hvað útúr þessari skoðanakönnun hefði komið heldur sagt frá því að niðurstaðan yrði birt í sjónvarpsfréttum nokkrum klukkustundum síðar. Hér er auðvitað um að ræða einkar klaufalega fréttamennsku og raun brot á því frumlögmáli í fréttamennsku að vera alltaf fyrstur með fréttirnar. Líklegt er að viðkomandi fréttamaður hafi séð þessa niðurstöðu en legið á henni til að auka áhorf á sjónvarpsfréttirnar í stað þess að birta niðurstöðurnar strax. Hér við bætist að sennilega er ríkisútvarpið að eyða stórfé í að greiða fyrir einkarétt á skoðanakönnunum ákveðins fyrirtækis mitt í öllum þrengingunum. Athyglisvert er að mogginn er með í þessu samkurli. Í haust var boðaður stórfelldur niðurskurður hjá RÚV og var fréttastofan alls ekki undanskilin. Núna kemur vitleysan í ljós, ekki er nóg með að sjónvarpsfréttirnar eru orðnar að myndskreyttum útvarpsfréttum og útvarpsfréttirnar af samsafni af segulbandsspólum úr birtum þáttum eða óbirtum heldur hefur allt upplýsingagildi frétta snar minnkað þannig að farið er að valda vandræðum t.d. í kynningum á aðgerðum stjórnvalda. Menn fóru í það að skera niður á ýmsum stöðum í stað þess að gera alvöru ráðstafanir til sparnaðar t.d. jafnvel að hætta síðdegissjónvarpi eða sjónvarpi á fimmtudögum sem hefði um leið sparað því pening getað bætt samkeppnisaðstöðu einkamiðla. Einnig hefði mátt t.d. fækka þulum, eða hálaunuð yfirstjórnendum. En þarna þorir enginn að gera neitt, fólkið borgar jú.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband