7.5.2009 | 15:33
Að hengja eða skjóta
Ný ríkisstjórn hvað víst eiga að líta dagsins ljós nú um helgina. Fæðingahríðir þessarar stjórnar hafa verið nokkuð erfiðar og voru það fyrst Evrópumálin sem sátu í mönnum en undir það síðasta hefur einkum verið talað um ríkisfjármálin niðurskurð skattahækkanir og því um líkt. Það er að segja hvort betra sé að hengja þjóðina eða skjóta. Menn virðast sammála um að fylla þurfi upp í tuttugu milljarða gat þegar í sumar hvernig sem það verður nú gert. Talað er um launalækkanir, sameiningu stofnanna, fækkun ráðuneyta svo eitthvað sé nefnt. Einnig hafa svo sem verið nefnd gömlu góðu ráðin; hækka áfengið og tóbakið en það virðist aldrei vera nógu hátt verðið á þeim vörum. Þó menn gleymi því alltaf að það að hækka þessar vörur kyndir undir verðbólgu og þar með hækka lánin. Einnig er talað um blessuðu olíuna sem hefur lækkað svo mikið á heimsmælikvarða að það er orðið hættulegt fyrir þjóðina enda ekki búið að finna olíuna á Drekasvæðinu enn. Enginn talar hins vegar um neina alvöru kerfisbreytingu t.d. að færa til fjármagn frá hátekjufólkinu og eyðslugeiranum yfir til framleiðslu atvinnuvega og lágtekjufólks. Afnema t.d. gjaldeyrishöftin og láta gengið kolfalla en setja kostnaðinn af gengisfellingunni yfir á offjárfestingarnar og eyðsluna til einföldunar, færa fjármagn frá höfuðborgarsvæðinu til landsbyggðarinnar og fara síðan í alvöru ferli þess að taka hér upp alvöru gjaldmiðil sem allra fyrst.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.