Aumingja Sjallinn

Það á ekki að sjálfstæðisflokknum að ganga þessa dagana. Fylgið hrynur eins og haustlauf í vindi hver höndin er upp a móti annarri. En menn hafa ekkert þarfara að gera en að standa uppi og verja danska stjórnarskrá. Og svo kom reiðarslagið, einhvernvegin lak út frétt um að flokkurinn hefði þegið gífurlega styrki frá bönkum að sögn gegn vilyrði um fyrirgreiðslu í sambandi við orkumál. Svo óheppilega vildi til að flokkurinn náði ekki að loka fyrir fjölmiðla nógu fljótt áður en fréttin var komin í loftið og er þetta gott dæmi um það hversu nauðsynlegt það er að hafa í landinu ljósvaka miðla sem ekki lúta pólitískum boðum. Hefði ríkisútvarpið verið hérna eitt um hituna, hefði flokkurinn vafalaust getað stöðvað fréttina. Sjálfstæðisflokkurinn er nú sem rjúkandi rúst þar sem hver höndin er upp á móti annarri og enginn hefur jafnvel rænu á að kalla á slökkviliðið enda slökkviliðsmennirnir hvort eð er allir uppteknir inni á þingi að tala um stjórnarskrá. Eða með öðrum orðum leikandi á flautur meðan Róm brennur.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband