1.4.2009 | 14:07
Vorfiðringur við Austurvöll
Það er fjör á Alþingi þessa dagana. Enda lifir skammt eftir af þessu þingi og að auki kosningar í nánd og þingmennirnir láta auðvitað eins og kýrnar sem sleppt er útúr fjósi á vorin. Fara þeir nú mikinn í málþófi ekki síst sjálfstæðismenn sem líklega halda að þeir muni uppskera atkvæði i takt við orðamagnið á þingi og nú er það ekki síst stjórnarskráar málið sem verst fyrir þeim. Þekking þeirra á sögu landsins er ekki meiri en svo að þeir gera sér ekki grein fyrir því að það er ekkert til sem heitir íslensk stjórnarskrá. Stjórnarskráin okkar er upphaflega þýdd úr dönsku og lítið eitt stafbætt. Ekki er kunnátta þeirra í stjórnmálafræði mikið beysnari. Sjálfstæðisflokkurinn stendur í þeirri trú að Alþingi sé stjórnarskrárgjafinn. Þó að Alþingi hafi aldrei gefið neina stjórnarskrá og geti aldrei gefið hana. Í nútímalegu lýðræðisþjóðfélagi er sú staðreynd almennt viðurkennd að þjóðin sé sinn eigin stjórnarskrárgjafi og þar af leiðandi er hugmyndin um stjórnlagaþing rökrétt. Það er ekki bara hérna sem sjálfstæðismenn vilja halda í gömlu hefðirnar. Þeir eru auðvitað himinlifandi með gjaldeyrishöktin enda hélt Pétur Blöndal lærðan fyrirlestur um það á þingi, hvernig hægt væri að sniðganga þau. Táknrænt fyrir þetta er það sem gerðist á landfundinum þegar gamli góði kolkrabbinn var hafinn á ný til vegsemdar með formannskjöri Bjarna Benediktssonar fulltrúa Engeyjarættarinnar.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.