Leðjuslagurinn hafinn

Þá er leðjuslagurinn hafinn, enda ekki nema 5 vikur til kosninga. Að sönnu er Alþingi ennþá að störfum og fer væntanlega ekki heim fyrr en búið er að afgreiða aðkallandi mál og sjálfstæðisflokkurinn búinn að þurrausa mælskubrunninn. Þá má gera ráð fyrir að þessi óvenjulega, stutta kosningabarátta verði sú harðasta og óvægnasta á síðari árum. Enda mikill tilfinningahiti í mönnum eftir sársaukafull stjórnarslit sem líkust voru snöpum hjónabandsskilnaði eftir 18 mánaða farsælt hjónaband og báðir aðilar eru eins og vænta má sárir og kenna hvor öðrum um. Forsmekkinn að því sem koma skal gat þar líta í mikilli rógsherferð gegn fyrrum viðskiptaráðherra Björgvin Geir Sigurðssyni á bloggsíðum þar sem hann var sakaður um hinar verstu syndir. En svona nokkuð getum við ekki tekið alvarlega í ljósi þess hvaða tíma við lifum á. Annars virðist það vera nokkuð gott veganesti en í kosningabarráttuna að játa syndir sínar. Þannig skákaði Tryggvi Þór Herbertsson sitjandi þingmanni í prófkjöri eftir að hann var búinn að játa á sig alvarleg fjármála afglöp. Nokkuð athyglisvert annars að hann skuli hafi verið efnahagsráðgjafi síðustu ríkisstjórnar. Þrátt fyrir allt náði Árni Jónsen 2. sætinu hjá sjálfstæðismönnum í suðurkjördæmi en var vanþakklátur fyrir og ásakaði flokksfélaga sína fyrir svik. Samkvæmt framansögðu virðist eiginlega ljóst að það gæti verið gott að játa á sig stór fjármála afglöp til að fá góða útkomu í kosningunum.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband