26.2.2012 | 17:42
Krosstré sem brást
Við Íslendingar höfum verið blessunarlega lausir við það að blanda samana stjórnmálaþátttöku manna og einkalífi. Við horfðum með hálfgerðri hneykslun á umræðurnar um framhjáhöld Clintons eða vændiskvennamál Dominique Strauss-Kahn. En svo allt í einu dúkkar upp mál stjórnmálamanns sem að vísu er löngu hættur í stjórnmálum. Það hefur löngum gustað um Jón Baldvin Hannibalsson en á undanförnum árum hefur hann setið á friðarstóli og yfirleitt vel virtur af öllum, þar til nú allt í einu þegar dúkka upp bréf sem hann hafði skrifað ungri frænku eiginkonu sinnar.
Alla rak í rogastans. Gat verið að þessi mikli maður sem meira að segja hafði frelsað Eystrasaltslönd hafi litið girndaraugum á fermingarstelpur og skrifað þeim klámbréf jafnvel á bréfsefni íslensks sendiráðs. Maður trúir þessu varla en þetta er samt staðreyndin. Hér er að sjálfsögðu um fjölskylduharmleik að ræða en hér er líka um að ræða brot í opinberu starfi. Hvort sem það var framið á erlendri grundu eður eigi og má í því sambandi nefna að í skilningi alþjóðalaga telst íslenskt sendiráð íslenskt yfirráðasvæði og því hefur sendiherrann líklega brotið íslensk lög auk þess að hafa brotið í opinberu starfi án þess að upp kæmist. Og vekur athygli þöggun sú sem umlukið hefur allt þetta mál og maður hlýtur að spyrja sig hvort fleiri svona mál hafi átt sér stað. En þetta má þó ekki verða til þess að við tökum upp þann erlenda ósið að nota einkalíf stjórnmálamanna sem tilefni til baráttu í stjórnmálum þó hins vegar verði að taka hart á því ef stjórnmálamenn verða uppvísir að lögbrotum eða óviðurkvæmilegri háttsemi í störfum sínum.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.