15.2.2012 | 14:42
Mundu eftir mér Baku
Þá er blessuð söngvakeppnin afstaðin. Mikið var um dýrðir og Harpan hljómaði alls ekki fölsk þarna á laugardagskvöldið. En sjálfsagt hafa herlegheitin kostað sitt og má í því sambandi spyrja sig hvort rétt sé að sjónvarp allra landsmanna sé að daðra við þetta Hörpuskrifli þarna við Reykjavíkurhöfn. 28 milljarðar eru meira en þrenn Vaðlaheiðargöng takk fyrir.
En þetta er nú afstaðið og maður verður að segja að úrslitin eru ásættanleg. Stelpan er snoppufríð og frábær fiðluleikari. Vonandi tekur hún fiðluna með sér til Baku, hún lyftir laginu mikið. En við lá að stórslys yrði. Það lag sem best kom út úr símakosningunni var rappsöngl sem Ingó Veðurguð er skrifaður fyrir þó ekki sæist hann á skjánum. Hefði sennilega unnið ef hann hefði sést sjálfur út á atkvæði fjölmargra barnapía sem eru heima á laugardagskvöldum og hafa aðgang að síma.
En hvað gerist í Baku veit enginn fyrirfram. Má vera að Ingó hefði getað rúllað þessu upp þrátt fyrir allt en Gréta kann annað hvort að vinna keppnina eða hreint ekki komast upp úr forkeppninni. Eurovision er undarleg samkoma hvað sem öllum umræðum um mannréttindi eða ekki mannréttindi líður.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.