Baku eða ekki

Heitasta deiluefnið í dag er það hvort Íslendingar eigi að senda keppendur í söngvakeppnina sem haldin verður þarna í Baku í vor. Einhver frétt upprunnin á BBC fór sem eldur í sinu, frétt þess efnis að yfirvöld þarna hafi rekið fátæklinga út á Guð og gaddinn, jafnað hreysi þeirra við jörðu til að byggja kristalshöll eina mikla til að halda keppnina í. Og ekki voru hreysin mikið bætt, sennilega ekki mikils virði. Þó þykir manni harla klént hjá þessum yfirvöldum að hafa þá ekki byggt sómasamlega yfir þetta fólk.

Auðvitað eru mannréttindi þarna í Azerbaijan vafalítið ekki með þeim ágætum sem þau eru hér á Vesturlöndum en hvort það er rétt að sniðganga keppnina þess vegna er stór spurning. Páll Óskar segir: "Nei, við eigum ekki að fara þarna". En einhver virtustu mannréttindasamtök sem til eru, Amnesty International segja að það komi fórnarlömbum mannréttindabrotanna mun betur að við förum. Og hætt er við að þó að við ein hættum við þátttöku hljómaði slíkt fáránlega í Evrópu og hjáróma nema fleiri fylgdu í kjölfarið. Hitt gæti verið sniðugt ef við sendum lag með texta þar sem á lítt dulbúinn hátt væri deilt á þessi mannréttindabrot og önnur þau mannréttindabrot sem viðgangast í Evrópu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hjartanlega er ég sammála þér Reynir. Það væri nú mikið betri ákvörðun að fara þarna út með áróður heldur en að sniðganga hana að öllu

Snædís Malmquist (IP-tala skráð) 9.2.2012 kl. 21:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband