Snjóar í Evrópu

Mikið óskaplega eigum við Íslendingar gott þessa dagana. Víðast hvar orðið alautt í byggð, að sönnu hálkublettir hér og þar á vegum en fólk er hætt að detta og brjóta sig í bæjunum. Úti í Evrópu er þessu ekki þannig varið. Þar snjóar og snjóar. Og eins og með Reykvíkinga um daginn þá kunna Evrópubúar miklu síður á snjóinn. Menn hreinlega deyja hér og þar úti á víðavangi. Auðvitað í löndum eins og Úkraínu eða Póllandi þar sem menn hafa bara drukkið vodkann sinn og sofnað út af en vandinn er líka mikill sunnar. Það var til dæmis talað um 60 sentímetra snjó í Róm. Það þurfti að kalla þar á herinn til að hreinsa og mörgum hinna fornu minnismerkja var hreinlega lokað. Meira að segja aumingja páfanum var ekki skemmt. Og á suður Spáni var einnig snjór sem ekki hefur sést í áratugi.

Og nú spyr maður: Hver er að tala um gróðurhúsaáhrif? Eru gróðurhúsaáhrifin bara eitthvað í munninum á náttúruverndarsinnum sem eru að reyna að finna einhverja skýringu á óvenjulegum hlutum? Eða eru þau eitthvað sem er raunverulegt? Kuldinn í Evrópu virðist ekki benda til þess.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband