3.2.2012 | 20:38
Flugvöllurinn enn!
Sagan endalausa um Reykjarvíkurflugvöll heldur áfram. Með reglulegu millibili skýtur umræðunni alltaf upp hvort þessi flugvöllur eigi að fara eða vera og hvort eitthvað og þá hvað eigi að koma í staðinn. Svo virðist sem nú loksins séu menn farnir að nálgast kjarna þessa máls. Spurningin um það hvort flugvöllurinn eigi að fara eða vera áfram í Vatnsmýrinni er nú ekki lengur ekki bara spurning um dýrt byggingarland heldur beinlínis um það hvort Reykjavík geti áfram talist vera höfuðborg alls landsins. Eina höfuðforsendan fyrir því að allri stjórnsýslu landsins hafi verið þjappað þarna saman á þennan eina ferkílómetra er sú að þar er flugvöllur í göngufæri þannig að stundum er beinlíns auðveldara að komast frá afskekktri byggð til Reykjavíkur heldur en í næsta þjónustukjarna. Auk þess sem Landspítalinn er þarna innan seilinga. Allar þessar forsendur bresta gjörsamlega verði flugvöllurinn fluttur og verði svo sem líklegast má telja að innanlandsflugið verði flutt til Keflavíkur er ljóst að gera þarf umbyltingu á öllu stjórnsýslukerfi landsins. Hvað okkur Akureyringar sérstaklega varðar þá ættu bæjaryfirvöld þegar í stað að ráða stjórnsýslufræðing til að gera úttekt á því hvaða stjórnsýslustofnanir væri hægt að færa hingað og hvernig auka mætti hér við heilbrigðisþjónustu og efla beint flug héðan til útlanda þar sem vel má vera að mun hagkvæmara kynni að sækja ýmsa þjónustu, verslun og afþreyingu til útlanda heldur en til Reykjavíkur. Fyrir hugað er að byrja skerða Reykjavíkurflugvöll þegar árið 2016 þannig að tímabært virðist að hefja svona úttekt nú þegar.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.