Búmm..... búmm.....

Búmm..... búmm..... Það sprakk sprengja nálægt Strjórnarráðinu í Reykjavík. Reykjavík er þar með endanlega komin í röð alvöru borga. Það vantaði ekkert upp á það annað en eitt lítið hryðjuverk.

Auðvitað var löggan óviðbúin. Hún var heila tvo tíma á leiðinni, næstum úr sama húsi. Menn þustu að með eitthvert sprengjuleitarvélmenni sem þeir varla kunnu á. Það er auðséð að þarna kunnu menn ekkert til verka enda hryðjuverk svo sem ekkert daglegt brauð á Íslandi. Ekki er heldur auðvelt að sjá hvers vegna Ísland ætti að verða eftirsótt skotmark hryðjuverkamanna. Jú, það gæti svo sem vel verið að einhverjir ofstækismenn fengju þá flugu í höfuðið að gera landið að íslömsku lýðveldi enda held ég að í íslenskri þjóðarsál búi nægileg grimmd til þess að hún geti meðtekið Sharialög.

Öllu líklegra er þó að á Íslandi gæti leynst einhvers konar Breivik. Ungur, einangraður skólastrákur ánetjaður einhverju af öllum þeim óhroða sem finna má á netinu. Mjög hafa verið í umræðunni þær hættur sem börnum og ungmennum getur stafað af netinu og ekki skal gera lítið úr þeim. En minna hefur verið rætt um fólk sem ef til vill er brenglað í hugsun og skoðar alls kyns ofstæki, kynþáttahatur og fordóma sem víða grasserar á netinu og auðveldlega getur brenglað huga veikgeðja fólks. Það er full ástæða til að um þetta sé rætt. Við vitum aldrei hvað fram fer í huga fólks. Einn daginn getur slík hugsun breyst í sprengjur og valdið skaða sem óbætanlegur kann að verða.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband