30.1.2012 | 20:30
Biskup í boði
Nú þegar eru fimm einstaklingar í boði þegar velja skal hver gegna skuli embætti biskups Íslands. Þetta er sjálfsagt allt hið mætasta fólk og örugglega mun það allt gæta hins mikla embættis með sóma. Það hefur nokkuð gustað um hann Kalla okkar að undanförnu og því hefur hann líklega ákveðið að nóg sé komið, ekki síst vegna ólgunnar í sambandi við hið svokallaða biskupsmál þar sem hann hefur legið undir nokkru ámæli vegna aðkomu sinnar.
Biskupskjör er ágætt tækifæri til þess að staldra við og íhuga stöðu okkar ágætu þjóðkirkju ekki hvað síst nú þegar mikið er rætt um stöðu hennar og hlutverk og margir vilja jafnvel afnema stöðu hennar sem þjóðkirkju. Og hvað sem slíkum vangaveltum líður þá er ljóst að gera þarf miklar breytingar á skipulagi þjóðkirkjunnar svo hún hreinlega virki í nútímaþjóðfélagi. Þar er sjálft biskupsembættið ekki undanskilið.
Einn frambjóðendanna til biskupskjörs Þórir Jökull Þorsteinsson hefur jafnvel komið fram með þá hugmynd að skilin milli biskups og vígslubiskupa verði afnumin þannig að í landinu verði þrír jafnréttháir biskupar. En maður spyr sig hvort ekki megi ganga alla leið og fækka biskupsembættum niður í tvö, Hóla- og Skálholtsbiskup sem að sjálfsögðu hefðu sínar aðalskrifstofur í Reykjavík og á Akureyri þótt þeir formlega sætu á hinum fornu biskupsstólum.
Í þessu sambandi skal bent á dálítið athyglisverða staðreynd. Við núverandi kjör biskups Íslands hafa formenn sóknarnefnda á Suðvesturhorninu kosningarétt en ekki formenn annarra sóknarnefnda. Og mætti af þessu draga þá ályktun að verið sé að kjósa biskup fyrir Suðvesturland. Ekki er hægt að sjá hvernig íbúar annarra landshluta geta litið á þann mann sem biskup sinn sem þeir ekki hafa jafnan rétt á að kjósa eins og hinir.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.