Myrkravernd

Jónas heitin Jónasson útvarpsmaður endaði gjarnan þætti sína á að biðja viðmælendur sína að passa sig á myrkrinu, þetta sama myrkur vill nú blessaður umhverfisráðherrann okkar vernda. Í nýlegum umræðum á alþingi um svokallaða ljósmengun kom hún fram með þetta stórkostlega nýyrði myrkravernd. Mátti á máli hennar skilja að allt þetta blessað ljós væri að ganga af gamla góða myrkrinu dauðu og þyrfti því að vernda það eins og hverja aðra tegund í útrýmingarhættu. Þetta er auðvitað drepfyndið. Íslenska þjóðin hefur frá upphafi vega verið í stöðugu stríði við hið ógnalanga myrkur og skugga vetrarins. Svandís blessunin ólst sennilega ekki upp í sveit í rafmagnsleysi og kulda, umvafinn þessu dásamlega myrkri þar sem draugar og forynjur eru hvarvetna á vappi. Vel má vera að lýsingin til dæmis í Reykjavík sé orðin svo ofkeyrð að ekki sjáist í stjörnubjartan himininn ásamt hinum leiftrandi björtu norðurljósum. En ráðið við því er ekki að stofna öryggi og vellíðan þéttbýlisbúa með því að slökkva ljósin heldur auðvitað að fara með ferðamennina út í auðnina það sem þessum miklu gæðum sem eru stjörnubjartur himinn og leiftrandi norðurljós verður notið ótruflað. Þeir sem eru að koma til þess að reyna íslenskt myrkur leita þess ekki í hálfrökkum öldurhúsum Reykjavíkur heldur á víðfeðmum snævaþökktum auðnum þar sem gulur máninn bleika lýs upp grund og þúsundir stjarna skína í heiðhvolfi háu.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband