Mænt á Bessastaði

Fyrst smá athugasemd. Ríkissjónvarpið er búið að birta viðbrögð háskólakennara á Akureyri við Vaðlaheiðarskýrslunni sem hann að sjálfsögðu telur ekki mikils virði. Að öðru.

Margir mæna nú löngunaraugum til Bessastaða enda þykir sú jörð hin ágætasta þó svo að breskum fjölmiðlamönnum hafi ekki þótt mikið til koma þegar hún Dorrit gerðist húsfreyja á stað þeim og þótti hún heldur taka niður með því að giftast búandkarli þeim sem þar bjó. En eitthvað virðist staðurinn hafa sér til ágætis og mörg nöfn eru nefnd þegar rætt er um næsta ábúanda þar. Og jafnvel þó að Ólafur haldi eftir smá glufu opinni svo hann geti skriðið inn ef hann ákveður að hætta við að hætta en slíkt gæti vel komið til greina til dæmis ef frambjóðendur reynast lítt eftirsóknarverðir. Það hafa svo sem ýmis nöfn verið nefnd, til að mynda Jón Gnarr en varla eru menn yfir sig spenntir fyrir því að framleidd verði serían forsetavaktin. Menn hafa nefnt Pál Óskar og má vel vera að einhverjum hugnist að sjá forsetan koma alveg gorgious niður diskóljósafoss við Bessastaði, en vissulega færi það í sögubækur ef hommi væri forseti og lesbía forsætisráðherra. Nokkur fleiri nöfn hafa verið nefnt hið ágætasta fólk örugglega en engir skemmtikraftar, þannig að forsetaembættið yrði aftur virðulegt, valdalaust en frekar leiðinlegt tylliembætti, laust við þá djörfung, nýsköpun og áræði sem hið nýja Ísland hefur svo mikla þörf fyrir.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband