Eg á inni hækkun

Forstjóri eða hvort það var stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur sagði á dögunum að þeir ættu inni hækkun. Það er svo sem ekkert athugavert við það þó að Reykvíkingar séu reknir úr orkuparadís sinni. Hitt er svo annað mál hvort að eigi að verðlauna Orkuveituna fyrir glannalegar offjárfestingar undanfarinna ára. Allt frá kýli því á Öskjuhlíðinni sem Perlan nefnist, til höfuðstöðvanna sem alltaf virðast vera að hrynja gegnum sjónvarpskapla, risrækju og fleira sem lítt kemur orkumálum við. En taxtar hafa víst ekki hækkað þarna nokkuð lengi og því þykjast menn eiga inni hækkun. Hér er ef til vill komið að einu mesta þjóðarmeini íslendinga, þessi þekking: Eg á inni hækkun. Hún heyrist alltaf þegar einhver starfstétt vill meira en hún hafði eins og slökkviliðs og sjúkraflutningamenn á dögunum og flugumferðarstjórar oft og iðulega. En til að mynda: öryrkjar, ellilífeyrisþegar, námsmenn og iðnverkafólk á aldrei inni hækkun. Ef það fær hækkun leggst efnahagslíf þjóðarinnar í rúst. Maður spyr sig: Er ekki undirrót efnahags og þjóðfélagsvanda okkar að miklu leiti ekki sú að það er rangt gefið í upphafi. Lítt arfbærar alætur þiggja milljónir meðan fólkið í framleiðslunni sveltur og fé er fjárfest í fínum veisluhöllum handa liðinu meðan lítilmagninn sveltur.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband